Ótrúlegur

Ég held að Bush sé kannski sá eini sem gerir sér ekki grein fyrir alvarleika málsins. "Vinur" hans Vladimir, eins og hann segist kalla hann hefur fullan rétt á að hafa áhyggjur,því yfirleitt er ekki mikið vit í því sem Bush gerir yfir höfuð. Það er lítið vit í nokkru hjá kallinum. Sem betur fer er hans tími að verða búin.
mbl.is Bush gerir lítið úr deilunni við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egill vs. BaugsAri

Egill, ertu að segja að þú sért ekki með skriflegann samning við þessa menn. Uppsagnarfrestur á ekki að vera neitt vafaatriði. Svo ertu líka í stéttarfélagi
mbl.is Ari Edwald svarar Agli Helgasyni í bloggheimum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki allt verkið óunnið ?

Hefur hann eitthvað byrjað? Ég bara spyr. Ef svo er, viltu þá ekki byrja, 8 leikir og 1 sigur, ÖMURLEGTAngry
mbl.is Eyjólfur: „Ég á mikið verk óunnið með þetta lið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í Guðanna bænum segðu af þér Eyjólfur ! !

Áhuginn hjá manni fyrir Íslenska landsliðinu er að engu orðin. Ég nenni ekki lengur að horfa á þessa pínlegu leiki Íslenska liðsins.

  Maður hefði haldið að menn mundu nú bíta í skjaldarrendur eftir hörmungina á móti Liechtenstein, en nei, leikmennirnir urðu sér aftur til skammar og sáu meira að segja um það að gefa Svíum fimmta markið,bara svona af því það er þjóðhátíðardagur þeirra í dag.

Ef Eyjólfur vill virkilega að landslið okkar nái einhverjum framförum, þá ætti hann að sjá sóma sinn í því að drullast til að segja af sér.

 

Niðurlægingin getur ekki verið meiri. OJJJJJ Bara


mbl.is Íslendingar sáu aldrei til sólar í fimm marka tapleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað að hjá UEFA

Var hann eitthvað í ankannarlegu ástandi þessi William Gaillard þegar hann var að tjá sig um þetta mál. Kannski eru tungumálaerfiðleikar hjá þeim í Knattspyrnusambandi Evrópu.

  Ég vona að svona miðaklúður komi ekki fyrir aftur á úrslitaleik í Meistaradeild Evrópu, eins og var í Aþenu.


mbl.is Platini dregur til baka yfirlýsingar um stuðningsmenn Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver tekur eiginlega pillu sem heitir Yasmin?

Það segir nú bara sitthvað um framleiðendur pillunar, þetta nafnWoundering
mbl.is Fékk blóðtappa í lungu vegna Yasmin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað heldur hún Ingibjörg að hún sé??

Og hvað ætlar hún að gera í miðausturlöndum? Það skelfur auðvitað allt þegar fulltrúar Stóra Íslands boða komu sína. Friður kemst á og engin þorir að drepa lengur.  Ég held að hún ætti frekar að einbeita sér að einhverju öðru, og spara okkur skattborgurum að þurfa að borga fyrir svona ruglferð.


mbl.is Ingibjörg Sólrún vill heimsækja Miðausturlönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama hver það er.

Það er alltaf sorglegt þegar einhver verður fíkniefnunum að bráð.  Ég vona bara að Kalli Bjarni komi sér úr neyslu, sín vegna og fjölskyldu sinnar vegna.
mbl.is Segist telja að fíkniefnasmygl hafi verið vegna fíkniefnaskuldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlileg viðbrögð

Þetta eru eðlileg viðbrögð hjá stjórnendum Samherja. Ekki mikið vit í því að vera að fjárfesta í nýju og fullkomnu frystihúsi ef ekki verða næg verkefni fyrir hendi. Þá borgar fjárfestingin sig ekki, í bili.
mbl.is Samherji frestar framkvæmdum á Dalvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til þess að breiða yfir klúðrið hjá UEFA

Hvaða tilgangi þjónar svona yfirlýsing? jú, til þess að breiða yfir klúðrið með aðgöngumiðana á úrslitaleikinn í Aþenu.

 Þar komust þúsundir manna inná leikvanginn með falsaða miða. Þeir sem voru með ekta miða var meinaður aðgangur að vellinum, á þeim forsendum að völlurinn væri fullur. Hvaða stuðningsmaður hefði verið sáttur við slík svör, eftir að hafa eytt hundruðum þúsunda króna til þess að ferðast til Aþenu og sjá hetjurnar sína etja kappi við AC. Milan.  Ég held að það skipti engu máli hvaða lið menn styðja þegar svo er komið fyrir mönnum.

 

 Þetta var algjört miðaklúður hjá UEFA. Vonandi koma þeir í veg fyrir þetta í Moskvu. Held að það verði samt erfitt, því þar þrífst svarti markaðurinn mjög vel, og Mafían í blóma.


mbl.is Parry ósáttur við skýrsluna frá UEFA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband