Fer Byggðastofnun þá aftur að dæla peningum í sjávarútveg á Vestfirði??

Og þá til þess að skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja sem eru í sjávarútvegi í öðrum landshlutum.  Byggðastofnun hefur undanfarin t.d. verið að niðurgreiða verð á rækju til Tesco í Bretlandi. Vilja landsmenn að skattpeningar þeirra fari í það??
mbl.is Iðnaðarráðherra: 1.200 milljóna kr. skuld Byggðastofnunar verði aflétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öfundsýki eða eiturlyf ?

Hvort skyldi það vera sem plagar þessa fávita sem ráðast að Eiði Smára ? Þvílíkir fávitar. Sem betur fer slasaðist hann ekkert.
mbl.is Veist að Eiði Smára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir í vinnu hjá Vegagerðinni, er það ekki?

Þetta eru mjög slæmar fréttir frá einum stærsta atvinnurekandanum á Sigló. Mikil skerðing á Þorskkvóta held ég að hafi verið banabiti rækjuvinnslunnar í þessu tilfelli.   Hvað gerir ríkisstjórnin við þessu, ekki neitt, nema þá að lána mönnum haka og skóflu.
mbl.is Uppsagnir boðaðar í rækjuvinnslu Ramma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þolinmæði,meðan menn deyja í Írak

Hvað ætlar þessi "Forseti" að senda marga unga hermenn í opin dauðann í Írak. Hvenær er nóg komið??? Ég bara spyr. Eru þeir ennþá að leita að þessum efnavopnum sem áttu að vera í vopnabúri Íraka.
mbl.is Bush biður Bandaríkjamenn um þolinmæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju KR ingar

Loksins kom að því. Sérstaklega eftir að þið fenguð KS ing í markiðWink
mbl.is Fyrsti sigur KR í Landsbankadeildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég held að íslenskir veitingastaðir og verslanir ættu að fara að bjóða meira uppá íslenska rækju, frekar en sýklalyfjarækju erlendis frá

Mér finnst það alveg hneyskli að í þau skipti sem ég fer út að borða, þá er ekki hægt að fá íslenska rækju. Íslenskum veitingamönnum finnst greinilega kúl að geta haft Tiger Prawns á matseðlinum hjá sér, þær virka svo miklu merkilegri en Icelandic Prawns.  Frekar bjóða þeir uppá erlent hráefni, sem hefur ZERO rekjanleika, og getur komið hvaðan sem er, og verið fullt af sýklalyfjum, og svo er eins og það sé klóaklykt af þeim. OJJ BARA.Sick

 

 VELJUM ÍSLENZKT, já takk. Sérstaklega þegar rækjuiðnaðurinn stendur eins illa og hann gerir í dag.


mbl.is Bandaríkjamenn banna innflutning á kínversku sjávarfangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valsmenn léttir í lund

Frábær sigur hjá Valsmönnum, Gummi Ben er eins og gott rauðvín, verður bara betri með aldrinum. Mjög gott fyrir deildina,ekkert gaman þegar FH er búið að vinna deildina eftir 10-12 umferðir.Happy
mbl.is Valur burstaði FH 4:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt hak í byssuskeftið

Hvað ætli sé langt í það að "næsti nýji maður" verði miklu betri í bólinu en Paul Sculfor. Hún þarf að fara að fara að kaupa framlengingu á byssuskeftið sitt, hún JenniferLoL
mbl.is Aniston segir Sculfor betri í bólinu en Pitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel gert

Mjög gaman að heyra svona fréttir, ekki bara af minnkandi Þorskkvóta og okurvöxtum bankannaWink
mbl.is Lét öll laun sín renna til góðgerðarmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðverjar með "Cruise Control"

Þó svo að Cruise kallinn sé í Vísindakirkjunni þá er algjör óþarfi að blanda trú hans inní þetta. Maðurinn er að fara að leika í kvikmynd, ekki að stunda trúboð í landinu.
mbl.is Þjóðverjar banna Cruise
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband