31.5.2007 | 09:26
Hvar endar þetta?
Mér finnst endalaust vera fréttir af þessu tagi í fjölmiðlum í dag. Hvernig er þetta með ungdóminn í dag, er virkilega ekkert fyrir krakka að gera en að ganga í skrokk á yngri börnum. Nóg er nú af afþreyingunni fyrir ungdóminn í dag, en kannski ekki allt uppbyggilegt, eins og ofbeldistölvuleikir og einhverjir nauðgunar"leikir".
Skyldi þetta ekki bara fara saman við það að foreldrar hafa sífellt minni tíma fyrir krakkana sína í dag. Mikið er lífsgæðakapphlaupið, en hver skyldi vinna það í lokin?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.